Það var óheyrilega kalt síðasta fimmtudag, eiginlega hlægilega kalt, eitthvað um -17° fahrenheit um morguninn, sem er hvað, -24° celcíus? Eitthvað svoleiðis. En þegar Skúli kom deginum eftir var búið að hlýna um 30°. Svona tekur borgin vel á móti honum.
Og hitinn hefur verið svipaður síðan 10-20° og lítið um snjó. Nema í nótt, nú er jörðin hvít.
Það var stórskemmtilegt hjá okkur í gær. Við sáum Minnesota ganga frá San Antonio í leik sem var engu að síður spennandi fram að fjórða leikhluta. Svo kíktum við á TGI fridays og borðuðum yfir okkur þar. Ég fékk mér ma. rækjur og bjór. Að lokum var TBS að sýna Groundhog day, svo auðvitað vakti ég til tvö, en Skúli gafst því miður upp í miðri mynd.
Á eftir fer ég aftur í tíma í 19. aldar miðaustrinu. Ég hef lesið ögn fyrir tímann, en veit ekki alveg við hverju ég á að búast. Þess vegna prentaði ég út tvær greinar af jstor.org (sem þið hafið held ég engan aðgang að, en er mjög gott kerfi) um umbætur Ottómana upp úr 1850. Renni í gegnum þær svo ég viti eitthvað hvað umræðurnar snúist um. Annars veit ég svo sem ekki hvort þetta verða umræður eða mónólóg frá prófessornum, en mér sýnist hann allt eins þess legur. Ég myndi ekki gráta tilvist mónólógs í dag.
Skúli ætlar að kíkja í einhverja búð. Hann er annars agalega vinsæll hérna.
Yes yes. Önnur recöp. Seattle leikurinn sem ég fór á var líka æðislegur, Kenny frábær en Minnesota vann samt. Og minn stóri frændi barasta kominn með nafn und alles og heitir orðið Benedikt Thor. Til hamingju með það.
Og svo lunch. Og svo lestur. Og svo tími. Og svo lestur. Og svo framvegis.