Dilemma dagsins er eftirfarandi:
Komið hefur í ljós að margra vikna nöldur af minni hálfu hefur leitt unga menn, sitt í hvoru laginu, til að endurhanna útlit þessarar síðu. Síðari tillöguna var ég að fá senda í pósti í morgun og leist vel á. En mér leist líka svo andskoti vel á þá fyrri. Hef ég þá uppástungu fyrir sjálfan mig. Síðan verður fyrst Skúla hönnun, og svo er ég verð kominn heim á nýjan leik verður Braga hönnun sett upp í staðinn.
Væru þá ekki allir ánægðir, og engin vinna til ónýtis?
Annars er óþarfa vesen dagsins frekar boring. Að vakna ríflega tólf, halda að það sé sunnudagur, en fatta svo í mókinu eftir nokkrar mínútur að í raun er um mánudag að ræða.
Bókasafnið lokar eftir þrjá og hálfan (cioé James Ford Bell) ég má ekki vera að þessu rugli.