July 2003


Eldri færslur31 Jul 2003 02:00 am

Daginn,

Svo sem ekkert að frétta nýtt og agalega merkilegt. Ég bara vildi taka smá pás, ekki langa, en örlitla. Er sko enn heima á Ægisíðu, því veðrið í morgun var fyrir neðan allar hellur, og svo mundi ég það að ég þurfti að hitta Pabba einhvern tímann í dag. Þá var bara alveg eins gott að nýta tímann í eitthvað annað en strætóferðir (tam. uppvask).

Ég held að ég hljóti að vera með hálsbólgu. Það er verulega pirrandi. Nú hef ég reyndar oft verið veikur á síðastliðnum árum, en ég minnist ekki almennilegrar hálsbólgu í mörg ár. Svo mörg reyndar að ég er hálf partinn búinn að gleyma hvernig hún lýsir sér (sidenote, bólgnir munnvatnskirtlar, sem kannski voru ekkert bólgnir, teljast ekki sem hálsbólga). Ég veit heldur ekki af hverju hún stafar. Ekki hefur mér verið kalt eða ég lifað vosbúð. Nei, og það er langt síðan að ég öskraði mig hásan. Og svo fylgir þessu enginn hiti eða neitt. Verulega furðulegt. Og leiðinlegt. Hún varð, eins og áður sagði, valdur að þögn minni á æfingu, eftir að hafa ágerst svona rosalega við sönginn (þessi tvíundarsögn hvetur mann reyndar til einhverrar afbrigðilegustu raddbeitingar sem fyrirfinnst held ég). En uss, ég fæ í hálsinn við að hugsa um þetta. Og á meðan get ég ekki sungið með Paul McCartney. Hvílík erkisynd, fyrir okkur báða.

Klósettið verður keypt á eftir. Húsasmiðjan kl. hálf fimm. Ég verð þar.

Eldri færslur31 Jul 2003 01:33 am

Eldri færslur31 Jul 2003 01:17 am

Eldri færslur30 Jul 2003 12:54 pm

Eldri færslur30 Jul 2003 12:29 pm

Eldri færslur30 Jul 2003 05:44 am

Eldri færslur30 Jul 2003 02:42 am

Eldri færslur29 Jul 2003 11:46 am

Eldri færslur29 Jul 2003 06:27 am

Eldri færslur29 Jul 2003 01:01 am

Next Page »