October 2003


Eldri færslur06 Oct 2003 12:38 pm

Jájá…

Skriftir, í dag, í orden. Kóræfing í dag, í orden. Ítölsku framburður minn, í orden.

Tíminn á morgun, … ekki búinn að lesa.

Og svo er allt og allt.

Mig vantar svo mjög slide rörið mitt á gítarinn. Agalegt að þurfa spila sinn slide gítar með bréfahnífi. Það er bara ekki það sama. Ég hef einnig reynt að nota penna, reykelsisbakka, glas og sjónvarpsfjarstýringu. Ekkert virkar jafn vel og það ætti. Uss. Það bætir sko ekki úr skák að eitt mest spilaða lagið á heimilinu þessa dagana er For you blue, eftir Harrison, þar sem téður George státar sig af slide gítar leik sínum á þennan hátt: “Elmore James hefur ekkert í þetta barn”. Ég hefði nú samt eitthvað í þetta barn, enda með 35 ára forskot á það. Mig vantar bara slide rörið mitt.

Já, meðan ég man, ég er officíalt kominn með nýja nágranna. Haha. Þetta er búið að vera vandræðalegt ástand hér á Ægisíðunni síðustu daga. Ég vissi að fólkið að ofan ætlaði líklega til Ástralíu í eitt ár, og ég reiknaði nú fastlega með því að íbúðin skipti um heimilisfólk á meðan. Nema að ég var ekki kvaddur. Og svo allt í einu var bara fólkið horfið, og einhverjir nýir gangandi um í garðinum. Jájá, þau hljóta að vera flutt hugsaði ég. En ekki bólaði á staðfestingunni, fyrr en í dag:

Partur a) ég er að vesenast við hurðina inní þvottahús, sem jafnframt leiðir inná stigagang, sem leiðir upp. Ég heyri að einhver hringir dyrabjöllu uppi (aldrei heyrt í henni áður, enda fer ég aldrei inní þvottahús). Svo heyri ég samtalið í kjölfar bjölluhringingar. Það er á ensku. Þau hljóta að vera flutt út álykta ég.

Partur b) ég er á leið útí strætó til að fara á kóræfingu rétt uppúr fimm. Strætó keyrir fram hjá mér vegna þess að ég var seinn. Samtímis kemur maður gangandi, skeggjaður. Við horfum á hvorn annan í smá stund, því ég sé hvert hann ætlar og hann sér hvaðan ég kem. Og loks kynnir hann sig og spyr, á mjög góðri íslensku, hvort ég sé “neminn” niðri. Jújú, kváði ég. Er þetta þá ekki nýi bandaríski nágranninn, sem ásamt þýskri konu leigir húsið (utan kjallarans) í fyrirsjáanlegri framtíð. Hann var vinalegheitin uppmáluð og ég kunni ágætlega við hann. So… nýir nágrannir, og allt í orden.

Fékk XO cognac heima á Vesturgötu, enda Mamma á leið út aftur. Kveðjucognac. Nammi XO.

Já, það er alltof alltof langt síðan ég setti inn Þórdísarlink. Ég geri það hér með á allt nema obligatory máta, heldur tengi ég linkinn frásögn af þýsku konunni hér að ofan. Ég var nefnilega var við hana áður en ég heyrði ensku talaða uppi (ætli það hafi ekki átt að vera partur a), jæja). Þannig er mál með vexti að ég hafði sko alveg tekið eftir konu á reiðhjóli, sem bjó sko ekki hér í den, verandi leggjandi reiðhjólinu í tíma og ótíma á sólpallinn hér í suðri, undir svölunum. Allt gott og blessað með það. Nema að Ian nágranni Bandaríkjamaður spurði mig áðan í stutta samtalinu hvort ég setti mig nokkuð uppá móti því (skiljanleg spurning, því útsýnið í suður er stórkostlegt, risastór gluggi og fínn). Nei vitaskuld ekki sagði ég, og meinti. Og Þórdísar referenceinn? Jú, hún er svo hrifin af reiðhjólum. Ég væri það líka myndi ég ekki svitna óhóflega við notkun þeirra uppí móti.

Sem minnir mig á það. Obligatory Ragnheiðar reference.

Og góða nótt.

Eldri færslur05 Oct 2003 12:44 pm

Eldri færslur05 Oct 2003 03:00 am

Eldri færslur05 Oct 2003 01:20 am

Eldri færslur04 Oct 2003 04:24 am

Eldri færslur03 Oct 2003 12:43 pm

Eldri færslur02 Oct 2003 12:40 pm

Eldri færslur02 Oct 2003 12:25 pm