Ég fer í vinnuna… í rigningunni.
Dreifi verkefni 1 og útskýri, hef það svo stresslaust og náðugt á ljúfri vinnustofu C. Nýjasta hugmyndin, og hún kom ekki frá okkur unglingunum heldur úr eldri áttum, er sú að leyfa nafni vinnustofunnar að verða áfram hið sama en endurskíra dyrnar að henni. Hvað þá? Jú, Gleðinnar dyr.
Annars fannst mér þessi mynd skemmtilegust af mörgum skemmtilegum. En vil ítreka það við alla lesendur að a) Ég og Anna erum löngu búin að hitta Ástu, en við það tækifæri fór Skúli heim og lagði sig og enginn tók af okkur myndir; b) Skúli og Hildigunnur eru fyrir löngu búin að bjóða okkur í heimsókn í Rauðagerðið, en það hefur staðið alveg lygilega illa á hjá okkur, og þá helst vegna áróðursskólans sem Anna þarf að sitja undir þessi kvöldin.
Sjálfur hef ég gripið tvisvar í Axis með nýheimkomnum Lúds og líkar alveg sérstaklega vel.
Réttarholtsskóli nálgast…
P.s.
Því þá tækist mér að blogga alla mánudaga í mánuðinum.