November 2005


Daglegt líf30 Nov 2005 12:23 pm

Kennslu lokið. Takk fyrir önnina kids.

Prófin eru ósamin… að mestu. Það verður fínt að semja þau, alltént 103, því það sem ég ekki einn, og samarbeit er iðulega skemmtilegra en sólópróject. Hvað felst í þessum orðum? Kvíði því að þurfa koma mér að verki við að semja prebbaprófið.

[NBA viðvörun]
Boston tapaði í gær. Úrg! Hvað kom fyrir hjá Mark Blount. Klikkar á stuttum jump hook og brýtur svo ekki á Howard og hans 50% vítanýtingu. Consequence? Tap. Æi, það er kannski ósanngjarnt að kenna einum manni um.

Reyni að vaka eftir Milwaukee vs. Dallas. Áfram bæði!
[NBA lokið]

Er að horfa á Friends á Sirkus [sic]. Sá Ástarfleysbrot, ja hérna segi ég. Þessi Friends þáttur markar hið fyrsta sinn sem mig langar ekki til að skipta um stöð er ég horfi á þennan fjölmiðil.

Svo er eitthvað endursýnt Kastljós. Þar er maður að tala um “einhverja mest arðsemisskapandi framkvæmd sem íslenskt samfélag getur farið út í.” Þar átti hann við skerðingu náms til stúdentsprófs. Það er kannski ágætt að menn þori að segja svona á opinberum vettvangi en beri ekki öðrum sjónarmiðum við. Hitt er svo annað mál að þetta sjónarmið er arfavitlaust auk þess sem það ber vott um algert virðingarleysi fyrir því sem mér og vonandi flestum finnst að eigi að skipta fólk máli.

Gamall tenór, Ingólfur Gíslason, skrifaði ljómandi grein um þetta mál. Það var í Moggann minnir mig, og einhvern tímann um daginn. Lesið hana ef þið rekist á.

Frí á morgun… amk. fyrir hádegi. Eftir það? Fullt af dóti, m.a. möguleg stækkun á giftingahring.

Eftir tvær vikur verð ég í Jórdaníu. Eftir 13 daga legg ég af stað.

Daglegt líf30 Nov 2005 05:37 am

Daglegt líf28 Nov 2005 10:52 am

Skoðanir27 Nov 2005 12:33 pm

Daglegt líf27 Nov 2005 04:51 am

NBA26 Nov 2005 11:22 am

Daglegt líf26 Nov 2005 03:10 am

Daglegt líf24 Nov 2005 09:26 am

Tilkynning24 Nov 2005 01:45 am

Tilkynning23 Nov 2005 12:03 pm

Next Page »