April 2006


Daglegt líf29 Apr 2006 02:45 am

Æi, þetta er ágætt allt saman, þrátt fyrir rigninguna.

Í gær “kenndi” ég heila þrjá tíma, sem samtals stóðu í uþb. hálftíma. Prebbarnir sátu í fjörutíu mínútur í sínum síðasta tíma í fyrradag, enda málglöð öllsömul og forvitn. Ég skal reyndar viðurkenna að ég má alveg hanna betra upprifjunarprógram fyrir hópana mína, fara yfir efni áfangans í mjög stórum dráttum og benda fólki á hvernig við kennararnir upplifum skiptingu þess og mikilvægi. En ég er ekki búinn að því enn og því fengu bara allir að fara.

Vinnustofa C var svo sérstaklega skemmtileg í ljósi þessa alls, og má benda á tvær staðreyndir því til rökstuðnings. A) Pálmi var búinn að kenna klukkan hálf níu, en var samt á staðnum allan daginn, og B) Fagstjórinn var búinn að kenna í fyrradag en var samt þarna allan gærdaginn.

Hlógum agalega mikið og skemmtun okkur. Svo bauð ég laganema nr. 2 í eftirmiðdagsbjór á Ægisíðu sem hún þáði með þökkum og stuði. Það var mjög viðeigandi á svo góðum og afslöppuðum degi.

Kvöldið var líka svona ljómandi mikið fjör. Afmælispizzur hjá Obbu og ég skar sveppina á þær. Um hálfníu stakk Anna svo óvænt af í 5 ára afmæli Fréttablaðsins, en ég, innviklaður eins og er orðinn, sat sem fastast eftir hjá tengdavinahópnum í tæpan klukkutíma til viðbótar. Stakk þá af til að hitta nokkra góða kennara og veita þeim móralskan stuðning áður en gengið yrði til móts við dimittanda á Hverfisbarnum.

Þar var stórskemmtilegt, í einu orði sagt. Nemendur eru oftar en ekki afbragðsfólk.

En ég dansa ekki (nema að Lagningadagaráð skipuleggi kennaradansnámskeiðið: “Hvernig skal dansa fyrir framan nemendur án þess að missa alla virðingu þeirra”).

Svo var vitaskuld áframhald á Obbuafmæli heima hjá mér þegar ég kom hingað uppúr miðnætti. Það var líka gaman.

Og nú… síðasta laugardagskarfan. Skyldu 15 mæta? Vona ekki, en 10 yrði æði.

P.s.
Svo hitti ég svila minn óafvitandi í dag og var reiður á svipinn. Bið hann hér með afsökunar á því leiðinda framferði mínu. Og illa greiddu hárinu.

Daglegt líf25 Apr 2006 04:57 am

Eldri færslur23 Apr 2006 07:03 am

Daglegt líf18 Apr 2006 03:30 am

Daglegt líf17 Apr 2006 03:48 am

Daglegt líf11 Apr 2006 06:07 am

Daglegt líf03 Apr 2006 06:40 am