May 2006


Daglegt líf27 May 2006 06:30 am

Ég var ekki búinn að ákveða mig áður en inn var komið þótt ég hefði afar sterkar skoðanir á því hvaða framboð væru tæk og hver ekki. Ég hef ágætis minni og kæri mig lítið í gamaldags stjórnunarhætti íhaldsins og gengdarlaus skipulagsklúður sem Villi er ekki enn búinn að fatta að hafi átt sér stað. Ég ber sæmilegt skynbragð á nýtingu og verðmæti lands í miðborg Reykjavíkur og gæti aldrei kosið pópúlista sem berjast á móti eðlilegri nýtingu þess. Ég er ekki fífl og gæti því ekki kosið Framsóknarflokkinn.

Svo eru tvö framboð sem mér er vel við. Bæði standa fyrir góðar skoðanir, hafa að bera ágætis fólki inn á milli einstakra slúbberta og eru að því er virðist einhuga í skipulags- og félagsmálum. Og af hverju þarf maður þá að velja á milli?

Kysi ég Samfylkingu á sama tíma og VG fengi bara einn mann þá fengi ég samviskubit.

Kysi ég VG á sama tíma og Samfylking fengi bara fjóra menn fengi ég samviskubit sömuleiðis.

Og sárast mun það svíða ef að atkvæði mínu reynist kastað á glæ og þar með óbeint í hin ótæku framboð.

Ég kann vel við Dag úr fjarska, þótt hann sé Narkisoss í jakkafötum. Stór jafnaðarmannaflokkur höfðar betur til mín en klofningsframboð. Ég er gamall evrókrati. Reykjavíkurlistanum hefði ekki átt að kasta á haugana. Og ég verð brjálaður ef Samfylkingin fær ekki nægilegan meðbyr, því það mun þýða alls kyns specúlantaröfl um meint getuleysi þess flokks, og það væri jafnaðarstefnu síst til uppdráttar. Þá grunar mig að VG sé á sumum sviðum einum of íhaldssamur fyrir minn smekk, þótt óupplýstur eins og ég er í öjeblikket þá geti ég ekki bent á neitt sérstakt (kannski frekar á landsvísu). En ég vil sömuleiðis afdráttarleysi í umhverfis- og skipulagsmálum og ég veit að í VG er mikið af góðu fólki sem tekur kannski frekar af skarið í þeim málum en Samfylkingarfólk. Góð kosning VG myndi þýða beinni stefnu í þeim málum. Og þá get ég ekki annað en þakkað Svandísi fyrir að lýsa því afdráttarlaust yfir hverjum eigi að vinna með eftir kosningar.

Já. Ég var ekki búinn að ákveða mig þegar ég fór bakvið tjaldið, í gömlu stofu 7-L í Hagaskóla, ef ég man rétt. Ég var svo skiljanlega heila eilífð að ákveða mig. S eða V? O jæja, nú er bara að vona að atkvæðið manns skipti máli.

Daglegt líf26 May 2006 01:47 am

NBA24 May 2006 09:51 am

Daglegt líf20 May 2006 01:03 am

Daglegt líf11 May 2006 06:02 am

Daglegt líf08 May 2006 08:19 am