June 2006


Daglegt líf30 Jun 2006 03:35 am

[NBA viðvörun]

Draftið er búið. Ítali valinn fyrstur, sem er jákvætt og nú heldur maður honum í Toronto. Randy Foye valinn í sjöunda picki Bostons, sendur til Portlands og þaðan áfram til Minnesota fyrir sjötta pickið þeirra. Mér líst vel á Foye fyrir Minnesota, þó ekki væri nema bara fyrir það að Bill Simmons grætur það að Boston hafi ekki hreinlega haldið honum.

Boston skipti síðan fyrstu umferðar picki fyrir 21. pickið í ár og valdi Rajon Rondo, sem í versta falli verður PG með hátt speed rating í NBA 2K7 sem ég mun kaupa mér einhvern tímann. Ainge hefur ekki skjátlast enn í draftinu og ég efa að hann hafi tekið upp á því núna.

Svo fengum við Sebastian Telfair og allt hans posse. Annar snöggur og stuttur pointari sem getur ekki skotið. Ég er samt merkilega bjartsýnn, enda ekkert hallærislegra en risastórir point guardar (sjá t.d. Brian Shaw (6,6), Penny Hardaway (6,7) og Magic Johnson (6,9)).

Og þá er það rumor rumoranna, Allen Iverson til Boston. Vildum vitaskuld losna við Szczerbiak og ekki mikið meira, en af einhverjum ástæðum vill Philadelphia fá eitthvað meira og síst hann. Al Jefferson, Gerald Green og Delonte West hafa verið nefndir til sögunnar í staðinn. Veit ekki alveg með það. Ætli það þurfi ekki þriðja liðið til.

En… það væri nú dáldið klikk að hafa bæði Pierce og Iverson í Boston… við fengjum amk. publicity.

[NBA lokið]

Norðurferð Reykvíkinga var stórkostleg í alla staði. Borgarfjörður skartaði sínu fegursta; Holtavörðuheiðin skýjum og geggjaðri þoku á bakaleiðinni; Staðarskáli góðri klósettaðstöðu og slöppum borgara; Blönduós góðum rúnti um bæinn; Öxnadalsheiðin stórklikkuðum risatrukki sem keyrði á 110 á nýlagðri klæðningu í rigningu; Akureyri góðu veðri, indverskum kvöldmat og rugludalli sem keyrði á öfugum vegarhelmingi; Hrísey smá hafgolu, skemmtilegum viðmælendum, geggjuðu útsýni og góðum minningum; Fnjóskadalur og skógurinn voru æðislegir og Laufás búsældarlegur. Sundið á Akyureyri var dýrt en Oddeyrargatan notaleg. Frábært in toto.

Og það er ekkert gaman að snúa aftur í bókaflokkun eftir svona ferðalög.

Það var hins vegar gaman að rústa Hirti og Lúds í Pacific í gær. Hef barasta aldrei séð annað eins.

Eldri færslur27 Jun 2006 09:42 am

Daglegt líf26 Jun 2006 10:58 am

Daglegt líf23 Jun 2006 10:50 am

NBA21 Jun 2006 04:55 am

Daglegt líf21 Jun 2006 01:43 am

NBA19 Jun 2006 02:17 am

Daglegt líf13 Jun 2006 03:32 am

Daglegt líf06 Jun 2006 11:01 am

Daglegt líf01 Jun 2006 01:51 am