Með fullri virðingu fyrir því spami sem mér berst semi-reglulega á þetta blogg, þá held ég að “fungus picture” hljóti að toppa ansi margt af því.
Kids, stofan er ekki tilbúin að fullu, en við erum flutt með hana út úr svefnherberginu. Enn á eftir að græja heildargluggatjaldalausn; raða einstaka bókum á hilluvegginn, fá einhvers konar leirtausskáp; redda lýsingu í borðstofuhornið og fá nýtt sjónvarpsborð. En, for all intents og purposes þá er stofan nýtileg og nokkuð ágæt, þó ég segi sjálfur frá.
Þá hef ég fengið tvenns konar viðbrögð við síðasta bloggi. Annað hvort nennti fólk ekki að lesa það eða það hafði gaman að. Það var og.
[NBA viðvörun]
Eintóm gúrka í gangi, nema salan á Seattle Supersonics til einhverra gaura í Oklahoma og líklegur flutningur þangað. Oklahoma Supersonics. Oj bara. Aumingja Seattle.
Þá er Iverson ekki lengur til skiptanna, svo ekki kemur hann til Boston.
[NBA lokið]
Hvað segiði um að ég fari að pæla aftur í skipulagi kennslu fyrir næstu önn?