Kidsedíkids,
Sunnudagshilsninger af Ægisíðu, þar sem stuðið er hálft vegna síðustu vinnutengdu fjarveru helmingsins hins. Vissulega ákveðinn galli að einnar viku sumarfríið beri upp á þeim tíma er ég verð djúpt sokkinn í vinnu, en hey the what.
Hvað er fyrir stafni? Jú, hið æsispennandi verkefni að fara í gegnum gamla mh tölvupósta, ákveða hverjum megi henda (þeir eru fáir, ég geymi allt) og framsenda hina á addressu sem ég get hlaðað niður af. Ég er búinn með 7 síður af 45 í Outlook og er kominn inn í september 2005.
Úff.
Átti ljómandi gærdag. Bakarísmorgunmatur; ferð með góðum hluta Bjargvætta og Fjallamanna, sjö in toto, á Nesjavelli í skallabolta (ég vann tvo leiki, yes) og svo sund í Laugarskarði í Hveragerði, frítt. Kom heim á hárréttu augnabliki, því Arnór Bogason var að leggja bílnum sínum á sama tíma enda var hann mættur í póker. Jónas og nýliðinn Eyþór mættu skömmu síðar, annars gegnsósa af rigningu (aldrei að hjóla í rigningu) og hinn veikur að sögn. Svo var póker fram til tíu sem fór 880 kr. í vonda átt. Daði svisslendingur mætti í heimsókn, en hann hafði ég ekki séð í afar rúman tíma og loks kom Anna heim af helgarvakt. Þá var tekin smá singstar sem var vitaskuld mikið stuð, og æsispennandi. Þannig vann ég tam. spúsu mína í “dudettes micro medley” með heilum 20 stigum. Þvílík æsispenna. Loks hentum við öllum út um hálf eitt.
Og já, fékk eitt af fjölmörgum matarboðum í Hrístateig á föstudag. Þar er alltaf gott að borða og Ásta er söm við sig í stuðinu. Við bræður vorum sömuleiðis í miklu fjöri, en eitthvað virtist mágkonunni blöskra það.
Kennslan hefur svo verið stórskemmtileg. Prebbadæmið mitt tókst ekkert frábærlega, enda stofa 44 horror, en allt annað hefur gengið að óskum og 103 meira að segja fram úr björtustu vonum (nema skráningar í Angel, þær eru ónægar). Væri nú reyndar til í annan frídag í augnablikinu, en þannig er það með skólann að þegar maður mætir þá vaknar maður oftar en ekki til lífsins.
Fékk svo símhringingu í síðustu viku með svokölluðu offeri sem ég gat ekki refúserað. Jón Leifs, Edda I, frumflutningur eftir áratuga dvala, Sinfó, stækkaður Schola Cantorum, tugþúsundir króna og ég. Smá bónus, ekkert inntökupróf í kór sem annars krefst þess. Leiðinlegar aukaverkanir, fyrrihluta skróp í leiðsögumannaskólann á mánudögum auk tilfærslu í kennslu vegna æfinga og upptakna. Lifum með því. Bónus: Agalega gaman að af manni fari svo jákvætt orðspor í söngheimum, og gott að vita af því að fólki getur boðist ýmislegt skemmtilegt án þess að það sé sífellt að troða sér fram.
Svo fer ég í nýnemaferð. Gaman, vonandi. Vel borgað, örugglega.