Í kvöld mun ég hitta um 25 til 50 forráðamenn eða aðstandendur aðra til að ræða við þá um guð má vita hvað. Jú, áfangakerfið, valið, stundatöflur, skólasóknarreglur og víst eitthvað fleira í þeim dúr. [Var að taka eftir því að þarna slapp með lélegur orðaleikur, undskyldninger]
Er tilbúinn að veðja 100 kr. að þau verði öll eldri en ég.
Hef svo fengið samstarfsnema í mína ítölsku málnotkun, sá er frá Róm og talar betri ítölsku en ég. Kannski ég viti eitthvað meir en hann um íslenska sögu. Vonandi verður samstarfið gjöfult og gott. Víst er að ég hef ekkert á móti þessum nýja ráðahag. Það var.
Á eftir er IB-kennarafundur. Ég er boðinn þrátt fyrir að kenna bara prebbum (og jú, sjá um nokkrar misduglega nemendur í extended essay skrifum). Ég vona að það verði léttar veitingar.
Svo ætti ég kannski að nota tímann núna til að skipuleggja þessa framsögu mína.
303 horfir á Gandhi. Gandhi er góð mynd. Verkefnið okkar er næstum jafn gott.