Það er ekki eins og ég hafi lesið Skúla vitlaust og haldið að þetta væri tímabundin lokun á allar færslur. Já nei nei. Hef bara ekki bloggað í smá stund.
Ég er ennþá þrítugur. Það er ágætt. Eina skiptið sem mér þykir það ógnvekjandi tilhugsun er þegar ég hugsa til þess hversu hissa og impóneraðir sumir vinir mínir í Minnasóti voru þegar þau komust að því að unglingurinn ég væri að verða 26 ára. 26 ára er nefnilega fyrsta fullorðinsárið. Og fyrsta fullorðinsárið er því löngu löngu liðið.
Var að senda einum þeirra tölvupóst. Ætli hann fatti orðið tölvupóstur? Hann segist nefnilega skilja smá íslensku og les þetta blogg endrum og eins. Ekki það að hann geti commentað myndi hann vilja það. Helvítis spam rugl.
Það er frekar mikið að gera hjá mér. Verður gott að slappa af um jólin. Verkefnayfirferð er frekar mikil og það er miðannarprófatörn í leiðsöguskólanum. Hálfsannarcúrsum er að ljúka og nýir að taka við. Mér hefur gengið sósó, dúxað í íslenskri bókmenntasögu og þjóðsögum en dýrafræðin brást mér aftur á móti. Það er sögupróf í kvöld (toj toj Anna), en hana fékk ég metna. Síðan atvinnuvegir á mánudag og þá verður prófatörninni lokið í bili.
Í december: Grasafræði og náttúruvernd (gisp gisp); íslenska samfélagið (yes yes); byggingalistar- og listasaga (gaman gaman); jarðfræði (gisp og gaman); ferðaþjónusta (?); og tungumálanotkun (gispedígispgispgisp).
Ef ég væri í þessu á ensku þá væri þetta talsvert minna mál.
303 er að komast á lokasprett. Síðasta verkefnið er næstum því full hannað. Allar mótteknar efnisgrindur yfirlesnar og einungis verið að bíða eftir síðustu eftirlegukindunum í Gandhiverkefninu. 103 hefur satt best að segja ekki verið jafn inspírerandi og í upphafi annar, einhver miðannarþreyta í gangi, en það er aldrei að vita nema að einveldið komi okkur í gott skap, og upplýsingin. Var annars með spontant tímaritgerð í fyrsta sinn í dag. Það gekk sæmilega vel, fékk ekki nema svo sem eitt opinbert diss og nokkrar minniháttar qvartanir. Margir skrifuðu með glæsibrag, sem var ánægjulegt.
Og svo er veislan. Hef ekki fengið svör frá öllum, en vona að skilaboðin hafi komist til skila.
Fagstjórinn og yfirliðinn skrópa veit ég, en þið hin… þið mætið. Hilsninger.