Já já.
Ég náði ítölskunni og vel það, fékk 8, sem var einmitt lang lægsta einkunnin mín, þeas. ef M og S teljast til hárra einkunna. Þetta var stórt séð skemmtileg önn í leiðsöguskólanum og ég mæli hiklaust með þessu námi fyrir alla sem hafa gaman af rútuferðum og að tala. Bókakostnaður þarf ekki að vera mikill ef að samkennarar ykkar lána bækur gegn loforði um að fá 9. Stóðst það í jarðfræði og meira til.
Lokatörnin í skólanum var strembnari en áður. Það er ekki vandræðalaust að vera umsjónarkennari, prófsýningar eru alltaf stress og skrif ritgerðaumsagna sem fara til spillis eru alveg einstaklega pirrandi. Hvað er að fólki í próflausum áföngum sem sækir ekki lokaverkefnin sín?
Ragnheiður er enn í uppáhaldi og mun verða það áfram. Við erum ekki alveg búin að ákveða hvað hún fær í jólamatinn, en það mun verða eitthvað fitandi. Svo hefur Ragnheiður ákveðið að gefa nokkra pakka og að styrkja mæðrastyrksnefnd.
Af jólaundirbúninigi er flest gott að frétta. Meirihluti pakka innpakkaður; Önnu Ipod, sem virkar ólíkt mínum, er búið að hlaða með öllum jóladiskum; búið er að ákveða hvert við höldum alla jóladagana; ákveðið hefur verið hvað við borðum á jóladag (scandinavískt hlaðborð og kalkúnaafgangar); og bakaðar hafa verið smákökur.
Eftir á að kaupa einstaka pakka, jólatré og -stand, og hafa það huggulegt. Og… kaupa brúðkaupsgjöf.
Ef við heyrumst ekki fyrr, þá til hamingju með jólin.