Helloy,
Vinnustofu C blogg. Vinnustofan heitir nú Víðavangur (áður Vinnustofa C), compliments til fagstjóra. Þetta er vitaskuld hinum stórfurðulegu samlimum sögu- og íslenskudeildar til heiðurs, en þau hafa nefnt A og B Sumarhús og Hlíðarenda. How nerd can you get. Væri það ekki svipað því að við myndum nefna C Viðeyjarstofu eða Bessastaði? Dísös.
Man aldrei hvor stofan er hvor en þessi kona hefur aðsetur á annarri þeirra.
Ég tók undir það með Önnu að það væri ekki mjög skynsamlegt að ég yrði sóttur til þess eins að vera heima í 40 mínútur fyrir leiðsöguskólann. Ég fattaði nefnilega að ég gæti bloggað. Það er ágæt iðja og fágæt á þessum síðustu og verstu en ég er allur af vilja gerður til að bæta mig. Stefni á vikulegt blogg til að byrja með.
En hvað veldur bloggleysi? Jú, [NBA viðvörun] ömurlegt (11 tapleikir í röð) gengi Boston [NBA lokið] og ekkert commentakerfi. Þegar fólk er farið að sussa á mann á sínu eigin bloggi en ekki hér þá er það merki um að eitthvað vanti.
Er trött. Mánudagar taka á. En þriðjudagar eru alger lúxus. Svo er líka kennarakarfa að þeim loknum.
Leiðsöguskólinn byrjar ekki alveg nógu spennandi. Skyndihjálparnámskeið eru alltaf svoddan bore og prófafyrirkomulag svæðislýsinga er hálf boring. Þá er sjálfsnámið í tungumálanotkuninni síst það sem ég þarf á að halda. Jarðfræðin er ekki enn byrjuð og ferðamennskucúrsinn var beinlínis móðgandi í fyrsta tíma, fyrir þá sem vita hvað breiddargráður og hnitakerfi eru. Hvað hefur verið gott? Brúðusýning um Eglu, hún var stórfengleg.
Önnin í kennslu? Soso. Maður er búinn að fatta mismunandi stemmingu í 103 hópunum, 303 virkar ágætlega á mig og prebbarnir eru þægari en fyrir jól. - Allt eftir bókinni sum sé.
Já, svo fer ég til Noregs í febrúar.