February 2007


Daglegt líf23 Feb 2007 10:15 am

Loyha kids,

Anna var að lesa ruv.is í gærdag og komst að því að þessi notalega snjókoma er komin í heimsfréttirnar. Verst í víst ástandið á Skáni og Sjálandi, en Sörlandet fær að fljóta með og þal. Kristiansand (réttnefndari Christianssand). Þetta er líka rosalega mikill snjór þrátt fyrir notalegheitin.

Það hefur snjóað bókstaflega stanslaust í rúma þrjá daga. Í hvert einasta sinn sem maður fer útúr húsi þarf maður að moka sér leið og yfir bílnum er alltaf nokkurra centimetra lag af snjó. En snjórinn er léttur og skjannahvítur enda ekkert leiðinda salt og engin nagladekk í gangi svo ég sjái. Fullt fullt fullt af snjóruðningstækjum og göturnar furðu greiðfærar af þeim sökum. Svo keypti ég 200 króna norskra skóflu á heimilið sem dugar betur til heimaruðnings en fægisskóflan sem var hér ein fyrir.

Ég var uþb. eina bílferð að læra rata um Kristiansand. Það er gæðamerki á borg sem telur tugi þúsunda.

Þetta er einmitt gæðaborg. Ég á varla orð yfir norsku landslagi og held að sú hrifning þurfi lengra og betra blogg síðar.

Þá er Anna veik og hefur verið alltof lengi. Talsverður gleðispillir en alls ekki alger. Svo sagði læknirinn líka að henni myndi væntanlega batna fljótt.

Vona að ég bloggi aftur frá Noregi. Útlönd eru svo blogghvetjandi að það er góð von á því. Tschüss þar til.

Daglegt líf15 Feb 2007 12:58 pm