Eccoci le ragioni:

Pálmi er verðandi starfandi conrector, ég er verðandi prófstjóri, fimm hópar fengust í þrjá valáfanga næsta haust og allt þetta tilkynnt á sama degi. Hybris city! (Og aumingja Kalli ekki mættur, enda fimmtudagur. En hann fékk spontant far í Borgartún enda alveg jafn drambsamur og við hin).

Svo er tveggja ára afmæli á morgun, og út að borða. Góð tvö ár.

Og langþráð íbúðarkaup verða frágengin dittó.

Og ég er ekki lengur í Noregi. Ragnheiður og House biðja að heilsa. Bananasjeik í tilefni dagsins, alla me.