April 2007


Daglegt líf25 Apr 2007 12:06 pm

Kjallari á Ægisíðu, kl. 22:40 á þriðjudagskvöldi.

“Ætlarðu að koma með mér útí Háskóla?”
“Já … hvað verðum við lengi? Ætti ég að taka með mér ritgerðirnar?”

Sem segir manni bara það að maður hafi of mikið að gera á þessum síðustu og bestu.

Notaði calendar fítusinn í Outlook í fyrsta sinn í fyrradag, frestun í formi skipulagningar og yfirlits, og komst að því að ég mun varla eiga neinn frídag fyrr en 8. júlí, en þá verð ég staddur í Aþenu nýbúinn á IB námskeiði.

Apríl er senn lokið og eftir af honum er að klára verkefnayfirferð í 103, halda áfram í 303 og þá sérstaklega að skila af mér alltof seint til mín skiluðum uppköstum, og fresta 2B3, það liggur ekkert á því verkefni. Svo þarf að semja próf.

Maí verður próffyrirlögn, þreföld próftaka og þar af ein munnleg, nokkur yfirferð prófa og verkefna og þessu öllu loknu á ég að fara í hringferð með samnemendum mínum í scuola di guide. Henni lokinni er mér hent beint í staðfestingadag, svo MK útskrift og svo MH útskrift. Henni lokinni tekur við undirbúningur undir leiðsögn í júní og tarnarvinna í bústað með deildinni. Svo eru þrjár ferðir á vegum Icelandtravel, þar af tvær fyrir Aþenu, og eitt stykki Aþenuferð og -námskeið í júlúbyrjun.

Engin er bloggendurreisn án upptalningar og sjálfsvorkunar.

Hef það samt ágætt, co-a próf í lagadeild og svona.

[NBA viðvörun]
Hvernig stendur úrslitaspáin? Þegar 12 leikir hafa verið leiknir er Dallas - Golden State serían þegar orðin meira spennandi en ég átti von á. Annað getur en farið skv. spá
[NBA lokið]

Ég er þreyttur. Gnacht.

Daglegt líf20 Apr 2007 09:49 am

NBA19 Apr 2007 01:20 am

Daglegt líf18 Apr 2007 03:47 am

Daglegt líf09 Apr 2007 01:10 am