May 2007


Daglegt líf25 May 2007 04:10 am

[NBA viðvörun]
Ég er svo mikill kjáni stundum. Þegar Kriz sendi mér sms sem í stóð “Welcome Oden” þá fylltist ég allt í einu bjartsýni. Skyldu Boston hafa unnið fyrsta valrétt í lotteríinu? Myndum við fá Greg Oden eða Kevin Durant? Ég var þá stundina að keyra og hringdi heim til Önnu og bað hana að athuga Boston Globe, sem hún og gerði og fann niðurbrjótandi fyrirsögn: “Luckless Celtics stumble to fifth place in draft lottery.” Sum sé, Kriz var ekki að samgleðjast Boston heldur að fagna fyrir Portland. Oj bara segi ég.

Ég hef ekki einu sinni haft fyrir því að specúlera í neinum öðrum vænlegum candídötum, enda átti Boston 40% séns á fyrstu tveimur pickunum. Og það er jú samdóma álit allra að þeir tveir séu það sem koma skal. Síðustu tvö sambærileg hype hafa líklega verið Duncan og Lebron.

Og hvað gerir Boston nú?

Bjartsýni gaurinn segir: Jefferson er ári eftir á en á næsta ári verður hann næstbesti bigginn í austrinu eftir Dwight Howard. Um leið og Gerald Green vaknar í varnarleiknum verður hann frábær. Delonte West er fínn sjötti maður og alveg serviceable pointari. Hægt verður að díla samningnum hans Ratliffs fyrir veteran næsta vetur. Paul Pierce er enn á sínu besta skeiði og fimmta pickið þarf ekki að vera neitt slor.

Svartsýni gaurinn segir: Jefferson á eftir að sýna sig í heilt season. Green vantar basket-IQ. Delonte er ekki hreinn pointari. Fimmta pickið er enn meiri ungdómur í alltof ungt lið og Paul Pierce er kominn í fýlu yfir slæmu gengi.

Fúli gaurinn segir: Takið Telfair aftur og þetta fimmta pick, látið okkur fá Lafrentz, Brandon Roy og fyrsta pickið. Oj bara Portland. … æi, Portland er amk. dignity lið. Pælið í ef þetta hefði verið Memphis.

Boston gaurinn segir: Kenny!!! Komdu aftur!!!
[NBA lokið]

Þá er það þessi ríkisstjórn. Ég veit ekki hvað þessi sólheimaglott á samfylkingarfólki eiga að þýða. Hvernig er hægt að vera meira en tvöfalt stærri en síðasti hækjuflokkur og fá verra hlutskipti í ráðherrastólum. Hvernig er ennfremur hægt að láta eftir mennta-, heilbrigðis- og fjármál? Hvernig er hægt að taka utanríkisráðuneytið ef Evrópa er ekki einu sinni sett á dagskrá (sem hefði nú átt að vera hægt þegar samstarfsflokkurinn er klofinn í sinni afstöðu). Hvernig er hægt að gera Össur og Björgvin og Kristján að ráðherrum. Hvernig er hægt að gera sáttmála sem er klárlega eftirgjöf á langflestum sviðum sem flokkurinn stærði sig af.

Að sjálfstæðisflokki. Björn og Guðlaugur? Úff.

Mætti ekki setja í lög að stórnarseta í verkalýðsfélögum og fyrirtækjum samtíma þingmennsku sé bönnuð?

Guðlaug af þingi og úr borgarstjórn. Takk fyrir.

Fúll? Jú nokkuð.

En líka nýútskrifaður leiðsögumaður. Síminn þagnar ekki. Sömuleiðis búinn að losna við gamla borstofuborðið á Laufásveg. Plássskapandi. Og búinn að standa mig vel á stúdentsvaktinni. Og klára flest allt skólatengt. Stress- og reiðiléttandi. Og kominn í lambakjötsbindindi. Léttandi.

Og hlusta á smá Stevie. Gleðjandi.

Skoðanir13 May 2007 02:32 am

Daglegt líf11 May 2007 07:47 am

Daglegt líf10 May 2007 09:34 am

Daglegt líf08 May 2007 09:28 am

Daglegt líf05 May 2007 01:34 am

Daglegt líf01 May 2007 08:38 am