Þau samanstanda af þessu:
Fimm áfangar í fullri kennslu, nefnilega:
Sag 103, Sag 303, His 1B3, His103/4, Sag 213.
Af þessum er einn valáfangi (213, fornaldarsaga) sem ég er að hanna frá grunni og kenna í fyrsta sinn. Þá er ég að kenna alvöru IB í fyrsta sinn sömuleiðis og það er talsverð grunnvinna í gangi þar, og loks er nýtt þema í 303, áttundu og níundu áratugirnir. Virðingarverð tilraun okkar Kalla til að líta framhjá ‘68 og ‘91.
Dunque, heilmikil vinna sem hefur þessa kosti: Fáir (23) í 303; minni tímarammi í 103 og aðrir að kenna hann meira en ég; fjórða rennslið á 1B3, sem er þá komið í gott groove. - En má maður ekki bæta við ókostinum 33 nemendur í þeim hópi sömuleiðis?
Þessa önnina er einnig nokkuð um óhefðbundna kennslu. Þannig er ég t.d. einn af kennurum Þingvallaáfangans Líl 111, fæ að fara í heilsdagsferð í þjóðarvögguna og skoða ótal vinnubækur nemenda að henni lokinni. Ég er einnig umsjónarmaður CAS 101, og þar eru nemendur 42 (!!!) sem krefjast persónulegrar athygli og yfirferðar dagbóka. Og já, ég er sömuleiðis umsjónarkennari þeirra allra, sem og allra nemenda minna síðan í fyrra. Samtals eru það ríflega 60 manns. Ég held að einhver hafi gert mistök í því máli.
Já, svo er ég prófstjóri. Viðmiðið þar er að mig minnir 100 yfirvinnustundir á önn.
Og ég er að öllum líkindum að fara taka einn cúrs í M.Paed. náminu í HÍ. Það er nokkur lestur í því.
Og svo loks, creme de la creme, þá sit ég í stjórn háæruverðugs starfsmannafélags MH. Hef þegar lagt blessun mína yfir tvær ákvarðanir þess.
Og ætli þetta sé ekki nóg?
P.s. [NBA viðvörun] James Posey er flott viðbót. Og House og Pollard í raun líka. [NBA lokið]