Laugardagurinn fór í kóræfingu, áhorf á 4. og 7. leik úrslitaseríunnar 1984 (beautiful) og vinnu við prófstjórn. Sumir deildarstjórar og undirmenn þeirra eiga reyndar eftir að svara mér en flest vafamál fyrstu umferðar eru afgreidd.
Þá hringdi ég í Soffíu til að reyna sníkja far í 27 ára födselsfest Kalla, en viti menn er þá ekki “best supporting blogger” þessarar síðu í Skagafirði í réttum. Og þar byrjaði partýið skömmu eftir hádegi. Annað en decadence-inn hér í bænum, Kalli sagði 9 til 10 við mig.
Faccialibro kemur afar sterk inn, en það hefur vissulega heldur hægst á eftir upphafsdagana þegar allir vildu vera vinir mínir. Hef reyndar fundið nokkra Minnasótsvini og bætt þeim í hópinn. Og hvað svo? Koma svo kids, allir vera memm á faccialibro.
Og South Park missionið gengur sæmilega. Season 3 í gangi.
Erdinger kemur frá Göttingen. Erdinger er í glasinu hér við hliðina á mér. Erdinger er alveg ágætur.