October 2007


Daglegt líf29 Oct 2007 05:30 pm

Stöð 1: Gérard - Frönsk freisting og Octóberfest.
Allir hópar fá val um Coté du Rhone í fínu glasi eða dósaBecks úr stóru Münchenarglasi (takk Kriz), Gérard reynir að selja þeim freistinguna, en falli hóparnir fá þeir F í stað A. 3 féllu af 7, og dísös segi ég. Þýskt menningarkvöld og fólk velur franska glasið, ja hér.

Stöð 2: Ég - Fall Berlínarmúrsins og sameining Þýskalands, túlkuð í dansi.
Allir stóðu sig með prýði, en instant múrinn hans Steina úr stólum auk sveiflum vesturþýskra creditkorta frá Pálma hlutu mesta náð fyrir augum dómarans.

Stöð 3: Gunnar - STASI og fórnaðu félaga þínum.
Allir blöðruðu einhverju svakalegu næsta mann á þar til gerð falleg STASI eyðublað (nafn stéttsvikara o.s.fr.) og Gunnar hræddi líftóruna úr mannskapnum enda óvægnlegur með austur þýska hermannahúfu (takk Lúds).

Stöð 4: Soffía - Prússnesk heræfing, marserað í takt.
Sumir áttu bágt með þessa stöð og fengu armbeygjur að launum. Marserað var við austurríska vini, Jóhann Strauss og Schubert. Gekk glæsilega held ég.

Stöð 5: Guðrún Matt - Der Oberinspektor, leikið Derrick.
Þetta var víst afar skemmtilegt dittó.

Stöð 6: Anna Sigga - Í Týrol er gott að djamm’ og djúsa, jóðlaðu af hjartans lyst.
Bestur var hópurinn sem jóðlaði Derrick lagið.

Stöð 7: Kalli - Ævintýraheimur 19. aldar - Velkominn í Grimmsnes, leikið eitt ævintýri.
Þetta var víst afar skemmtilegt sömuleiðis.

Þá var Peter Weiss afar skemmtilegur, Hildigunnur og Hrönn voru frábærar, maturinn hæfilega sveitó og góður og verðlaunin fyrir aktivitätið (allt frá 10.000 mörkum í 100 billjónir marka) ekki af verri endanum.

Glæsilegt sum sé, er nema von að maður sé stoltur.

Daglegt líf21 Oct 2007 09:58 pm

Daglegt líf17 Oct 2007 11:04 pm

Eldri færslur15 Oct 2007 11:30 am

Daglegt líf12 Oct 2007 12:01 pm

Daglegt líf10 Oct 2007 02:29 pm

Daglegt líf08 Oct 2007 04:28 pm

Daglegt líf04 Oct 2007 09:44 pm

Daglegt líf01 Oct 2007 08:01 pm