Ég fer til Flórída í eftirmiðdaginn.
Með í för verður ríflega hálf tengdafjölskyldan en enginn köttur. Ragnheiður fær húsgest sem hefur samþykkt að fæða hana í skiptum fyrir afnot af þægindum heimilisins og félagskap kattarins. Ekki slæm skipti.
Sjálfur ætla ég á körfuboltaleik og í fenjasiglingu, og vitaskuld að gera heiðvirða tilraun til að spila WIF.
Kem heim á nýju ári, þar til gleðilegt alltsaman og takk fyrir gamalt.