January 2008


Daglegt líf31 Jan 2008 04:18 pm

Og í febrúar byrjar betri tíð, ef ekki í bloggi þá amk. í lengri dögum, minna frosti, meiri ETA og Ítalíu.

Lífið gengur ákveðinn vanagang þessa dagana en vissulega gæti ég tínt til nokkur smáatriði sem gleðja mann og breyta hversdeginum. Þannig áttum við Anna erindi í Elko í fyrradag til að kaupa nýjan hraðsuðuketil (rekum einnig íbúð á Reynimel, sú fær okkar gamla dót sem passar ekki inn í afar stýlíseraða Ægisíðuna) og hvað fundum við þar nema Expansion for Civ IV, Beyond the Sword heitir hún. Þessi viðbót bætir úr stærstu göllunum við gamla leikinn, nú getur maður verið Býzans, og bætir þar að auki heilmiklu við leikinn, sérstaklega í njósnum og great people functionum. Mæli með henni við alla menn. Þá spáðum við einnig í að kaupa ísvél, en ætlum þó aðeins að hugsa hvernig við getum fengið meira pláss í frystinum áður en við látum verða af því. En ja hérna, ég minnist enn Lime-Chili íssins sem Kalli og þáverandi Sigrún buðu upp á í ETA boði fyrir rétt rúmu ári. Langar í svoleiðis á nýjan leik.

5% verkefna þessarar annar eru yfirfarin, þá eru ekki meðtalin smáverkefni innan hvers cúrs. Sum sé, ekki mikið.

[NBA viðvörun]
Boston heldur ekki alveg sínu striki, hafa spilað circa 50% bolta síðan þeir unnu Detroit á sannfærandi hátt í byrjun mánaðarins. En er það ekki merki á mörgum góðu liðum að detta aðeins niður í janúar? San Antonio hefur amk. gert þetta í mörg herrans ár án þess að fólk verði verulega áhyggjufullt. Verra er að Garnett meiddist í fyrsta sinn á þessu tímabili um daginn og Ray Allen lá með gubbupest í rúminu. Hvað gerðu Boston þá? Unnu Miami með 30 stigum. BOSTON!
[NBA lokið]

O hvað það var gaman að NBA blogga í gamla daga… “Kenny!!!” Dúndurstuð.

Annars er ég barasta kominn til Ítalíu í huganum. Skítt með það að ég þurfi að fara á CAS námskeið í 3 daga, það er algert aukaatriði. Skítt með það að ég geti hvorki verið með kennararæðuliðinu né -spurningakeppnisliðinu á Lagningadögum, Ítalía er einfaldlega of mikið fjör. Næst á dagskrá er að ákveða hvernig dögunum verði eytt, spurning um að fjárfesta í Lonely planet? En ef einhver skyldi vera forvitinn þá búum við hér í minni góðu borg. Annars bjó ég við þetta horn á sínum tíma. Æi hvað þetta verður indælt.

Daglegt líf28 Jan 2008 10:25 am

Daglegt líf20 Jan 2008 11:22 pm

NBA03 Jan 2008 06:10 pm