Karma? Held það bara.
Eyði gærkvöldinu í lokayfirferð á nemendaritgerðum, og í henni er falin internetkönnun. Finn sex stolin verk að einhverju leyti auk þess sem fjölmargir gleyma tilvísunum og/eða svara ekki rannsóknarspurningunni sinni. Þá verð ég fúll. Mæti í tíma og kem sjálfum mér á óvart hvað ég er foj við krakkana og reyni að bæta það upp í lokin, er þó ekki viss um að það hafi borið árangur.
Mæti á kóræfingu í kvöld. Kem sjálfum mér á óvart hvað ég er orðinn ryðgaður í sumum verkum, og reyndar fleiri kórmeðlimir líka. Kórstjórinn er ögn foj við okkur en dregur ögn úr í lokin, enda erum við góður kór.
Ætla að virða hann fyrir þetta, sjálfs míns vegna. Og jú, kannski smá hans.
Svo er ég líka fúll yfir: [NBA viðvörun] Boston tapinu í fyrradag; stöðu Phoenix á móti San Antonio; getuleysi Denvers gegn sullubjakkinu; því að Rajon Rondo hafi bara lent í 5. sæti í MIP valinu; getuleysinu í Washington á móti Delonte West og liðinu hans; sjálfum mér fyrir að hafa ekki haldið meira með Houston á móti Utah því T-Mac er held ég ágætur gaur. [NBA lokið]
Prófstjórn rétt að hefjast. Næsta verkefni: skipta prófum á sali, það er ekki jafn ógeðslega einfalt eins og það hljómar.