May 2008


NBA19 May 2008 11:55 pm

Sælir veri lesendur!

[NBA viðvörun]

Cleveland serían var í raun ekki eins agaleg og Atlanta serían. Sú fyrri hafði undirbúið mig fyrir þá hræðilegu staðreynd að Boston væri ekki ósigrandi á útivelli og að þeir gætu yfir höfuð tapað nokkrum leikjum. Það kom mér því ekki á óvart að Cleveland skyldi vinna 3. og 4. leikinn, en ég var reyndar nokk hissa á þeim 6.

Svo var sá 7. heilmikil stemming, óneitanlega svipaður shoutoutinu milli Larry og Dominique tæpum 20 árum fyrr (22. maí 1988). Þegar Paul Pierce setti 9. stigið sitt með þristi í fyrsta fjórðung og staðan var orðin 16-4 fyrir Boston, þá spratt ég á fætur, kýldi í loftið og snéri mér hálfhring. Kriz og Skúli urðu skelkaðir. En hvað get ég sagt, ég hefði varla afborið tap, og gladdist sem því nam vegna velgengninnar.

En Cleveland kom aftur í 3. leikhluta og fór loks að gefa boltann á Zydrunas Ilgauskas. Hann er verulega ócharmerandi leikmaður en það er ekki hægt að neita því að hann er talsvert stærri en Kendrick Perkins og skilar sínum skotum. Þá var vörnin á Pierce (26 stig í fyrri hálfleik) mun aggresívari en í þeim fyrri, og Ray Allen, sem nú fékk tvö til þrjú galopin skot setti ekkert þeirra.

4. leikhluti var classic. Pierce og Lebron voru rosalegir báðir tveir, en dómararnir tóku nokkra phantom dóma og slepptu sumu alvarlegu(peysutogið, dísös!) og þegar Pierce missti boltann gegn Lebron sem tróð á þann ruddalega hátt sem honum er einum lagið í kjölfarið, þá sökk ég í stólinn. Vandræðaleg Boston sókn þar á eftir, boltinn endar hjá 38 ára gömlum varnarjaxli sem var þekktastur fyrir að spila við hlið Alonzo Mourning hjá Miami fyrir aldamót. Hvað gerir P.J. Brown? Svissar jumpernum svellkaldur af 5 metra færi.

Svo var fallegasta stund leiksins. Eddie House setur tvö víti, Boston sex stigum yfir, en Pavlovic djöfull (hann er boring gaur) setur þrist í horninu. Átta secúndur eftir, brotið á Pierce og hann á vítalínuna. Fyrsta skotið aftan á hringinn, langt upp í loft, og svo í gegn. Brosið sem fylgdi þessu var hreint út sagt ómótstæðilegt. Paul Pierce er vinur minn. Næsta víti var tandurhreint og leikurinn í höfn.

Grænn, nr. 34, takk fyrir sigurinn og gangi þér vel á móti leiðindunum frá Detroit.

[NBA lokið]

Og já, prófayfirferð og -stjórn er lokið. Er ekki frá því að ég sé gráhærðari en ég var áður. En þetta hafðist, stór- en ekki smáslysalaust.

NBA04 May 2008 11:47 pm

NBA04 May 2008 06:11 pm