August 2008


Daglegt líf14 Aug 2008 01:35 pm

Sumarið? Mikið hangs, meira hangs og svoldið hangs í viðbót. Mikil einsemd því Anna var svo mikið að guide.

Ein hringferð með 17 Ítali, þar af gröfumann frá Róm sem fannst ég ekki kunna næga jarðfræði. Aðrir voru almennt ánægðir, þ.m.t. ég og María bílstjóri. Ein dagsferð um Reykjavík með bandaríska ellilífeyrisþega, tipsuðu til jafns við launin mín, og voru mörg hver óskaplega leiðinleg.

Akureyrardagsferð með Mótettunni í júní, gekk so so fannst mér en ekki mikið meira en það.

Hljómeykisdvöl í Skálholti í júlí, tvennir tónleikar og ein messa. Gekk aftur á móti ljómandi vel, og stemmingin var prýðileg, sérstaklega þegar ný lög um glæsileika Reykjavíkur voru samin út á palli. Hafnarfjörður 100 ára ain’t got nothing on us! Hvað þá pissukeppandinn Gunnar I. Birgisson.

Helga frænka kvödd nokkuð skyndilega.

Fjórir kettlingar fæddust, allir nema einn kyngreindir ranglega í upphafi. Ástæða þess var sú að ég og Halla mágkona vorum sannfærð um að þrílitir kettir væru alltaf læður. Nöfn og örlög kettlinganna eru sem stendur eftirfarandi:

1) Þorlákur, síðar Láka, nú síðast Ídiló, til heimilis hjá Kalla. Hinn mesti fjörfiskur, fyrst til að fara í skoðunarferðir og klifra upp eftir lærum fólks. Alsvört.

2) Gissur, síðar Gissulín (á köflum Ragnheiður yngri), til heimilis á Ægisíðu. Síðust til að venjast kassa, tvímælalaust með óræðasta brosið, næst rólegust. Svört og hvít. Anna taldi um tíma að hún væri þroskaheft, en það sér hver maður að slíkt er rugl. Gissulín þarf nauðsynlega nýtt heimili og nýtt nafn.Koma svo! Hún er yndi.

3) Grábranda, rétt kyngreind í upphafi, nýtt nafn enn óþekkt, til heimilis hjá Brynju Obbusystur. Sú allra penasta og lang síðust til að opna augun. Grábröndótt.

4) Randalín, síðar Guðbrandur. Stærstur, þyngstur, með lengsta skottið og stærstu þófana, og lang mest kelirófan. Grágulbröndóttur og algert dúndur, og hin mesta furða að enginn hafi þegið hann sem heimiliskött enn sem komið er.

Já, þá uppgötvaði ég WoW. Skiptar skoðanir um gildi þess, en ég er nokk sáttur enda hef ég margfaldað samskipti mín við Finnland af þessum sökum.

Stórfín dvöl í bústað í Laugardal við Laugarvatn, en þangað flúðum við undan asthma og kattaofnæmi. Vorum þar í hitabylgjunni og sátum fáklædd á Heklubekknum svonefnda, sem við settum upp fyrr í vikunni og dregur nafn sitt af útsýninu. Þess má þó geta að á miðvikudeginum var hitamistrið svo mikið að ekkert sást til Heklu.

Fengum MacBook Pro, góð tölva og betri en þessi gamli HP jálkur.

Já, svo skemmtileg útilega í Þjórsárdal með kennaragenginu, sem er flexible stærð og góð. Vinsamlegast ekki sökkva þessum dal neðanverðum þó það sé komin kreppa. Tack för.

Og svo? Kennsluundirbúningur, hófst í síðustu viku. Og sónarar maður.

Allt í allt alveg í lagi.

Tilkynning11 Aug 2008 03:14 pm