Eldri færslur12 Jun 2008 07:20 pm
Fjórir í allt. Fæddust 6. júní í eftirmiðdaginn, sama dag og Anna fór í fyrstu hringferð sumarsins. Heppin hún. Í stuttu máli sagt eru þeir hin mestu krútt, og þá some.
Fyrsti er svarthöfðað fress í svörtum sokkum og gráan búk. Hann er næstþyngstur og aðeins farinn að opna augun.
Annar er svarthöfðað fress í hvítum sokkum og gráan búk. Hann er léttastur.
Þriðja er ljós grábröndótt læða. Hún er næstléttust.
Fjórða er grábröndótt með smá brúnu, farin að opna augun og er langþyngst.
Einn verður eftir hjá okkur, einu fressi hefur þegar verið ráðstafað, og tvo vantar gott heimili. Hafið samband.
RSS feed for comments on this post. | TrackBack URI