Ég er í engum vafa um það og þegar nemendur mínir, sem hefðu vel getað verið betur lesnir fyrir prófið á föstudaginn, sögðust vilja vaka í nótt að horfa á úrslitin (og þal. ekki læra á meðan) þá sagði ég þeim að ég væri fullviss um sigur Obama.
Þessari vissu til staðfestingar lofaði ég þeim að allir sem tækju prófið fengu 10 ef McCain myndi vinna.
Það er lítil fórn fyrir mig, og litlar skaðabætur fyrir þau. En what the heyhey.
Þessi póstur er til staðfestingar. Ég skrifaði þetta líka á töfluna og af loforðinu var tekin mynd á amk. eina tölvu og einn síma. - Og nú er eins gott að maður reynist sannspár.
RSS feed for comments on this post. | TrackBack URI
November 20th, 2008 at 8:40 am
Mummi minn, það er langt síðan Obama vann. Hvar er bloggstuðið?