Nei nei, bara bloggandi.
Hvað er títt? Barn eftir mánuð, tæpan (!), og nýr gamall bíll á morgun? Já, hver fílar ekki átta ára gamlan Bostongrænan Renault Clio? Boston er líka með 20 sigra og bara 2 töp.
Þrír prófdagar eftir en þó einungis eitt próf alyfirarið. Heilmikil annarvinna óunnin enn. 28 er hið venjubundna fjör, nema að nemendur hafa verið óvenju ófyndnir í prófunum sem af er. Tveir commentuðu á forsíðu 103 prófsins, annar á góðan hátt (minn nemandi) og hinn á ljótan hátt (Stebba nemandi). Sumir eru greinilega kjánar.
Og kominn með fleiri vini en Anna á Faccialibro, ætla þó ekki að segja henni það strax, því þá fer hún í vinaleitarleiðangur og skýst upp fyrir mig aftur.
Æi þetta er gaman, kannski að ég byrji aftur.
RSS feed for comments on this post. | TrackBack URI
December 9th, 2008 at 11:55 pm
Treysti því að mín dóttir sé ekki nemandinn sem commentaði ljótt :p
December 10th, 2008 at 7:49 am
Nei, þá hefðirðu nú fyrst fengið að heyra það. - En fannst henni forsíðan sem sagt ekki fyndin?