Í tilefni af því að gestur situr inni í stofu og spjallar við Önnu um lögfræði, blogga ég um húsráðandastörf. Það fengu enda allir þennan ágæta rétt og voru ánægðir. Næst á dagskrá væri kaffi og með því, en kaffimaskínan er enn að hitna svo ég get ekki farið í eftirréttarpælingar að svo stöddu.

Ég hef nýlega skipt um status á Faccialibro, einu sinni sem oftar, og er nú í jólatiltekt samkvæmt því. Hún gengur alveg. Og jólagjafir eru keyptar, allar nema tvær, en þær eru planlagðar svo það er í lagi.

Þá er Boston með 24 sigra og 2 töp, og 16 sigurleiki í röð, sem er stórkostlegt.

 Hversdagslegt blogg er nauðsynlegt til að koma sér í gang aftur. Og ég skal koma mér í gang aftur.

Barnlaugur -14. Yes express!