1. Leikhluti.
Ég held hreinlega að ég sé nokkuð spenntur. Smá hjartsláttur und alles. Og Svali að lýsa, það er gull. Leiðinda Lamartroðsla en þristur á móti hjá Pierce. Radmanovic með tvær villur eftir tvær mínútur, það gerir lítið fyrir Lakers. Fiskaskot. Perkins setur fallegan turnaround, Pierce endurgeldur stoðsendinguna. Og Pierce er rosalegur! Fiskar þriðju villuna með góðri keyrslu, bæði villa á Odom og Ariza. Oj jæja, Gasol er svo sem í lagi. Og fallegur turnover hjá Kaupajárninu. Hvaða rugl sóknarvillur er verið að dæma?! En nú er Garnett kominn í gang, samt bara 10-15. Og Ray Allen kominn á blað, 12-15, lúnkin keyrsla.- Leikhlé - Og leikkerfi Lakers svo gott eftir það að þeir klikka á skotklukkunni, og Garnett fer jafn illa með Gasol og Spánverjinn með hann áðan. Og Pierce að sækja 4. villuna. Og svo subbulega fallegur þristur frá Allen, 17-17. En nú setur hann bara annað vítið, oj jæja. 1 af hverjum 10 er svo sem ásættanlegt. Og nú sóknarvilla á Kaupajárnið, hefnist fyrir Perkins. - Leikhlé - Svo vandræðalega löng Celticssókn en Garnett setur langan jumper, 20-19. Frábær hustlevörn hjá Powe, og svo sækir hann aðra í sókninni. Það er ekki furða að hann sé svo dýrkaður af Boston aðdáendum (frekar en Doc), vítin klikka þó bæði. Svo næstum því buzzerbeater frá Allen, 20-22.
2. Leikhluti.
Ok, verulega slakt skot hjá Cassell, en svo höstla hann og Posey boltann vel til baka. Sjáiði sendinguna hjá Allen og fiskið hjá Powe! Setur fyrra vítið, og það síðara, 22-22. PJ Brown, 24-22. Svo sækir Leon Powe þriðju villuna, en klikkar nú á fyrra vítinu og setur seinna. Smekklega 50% í nýtingunni. Og svo nær hann í fjórðu villuna, djöfulsins hörkugaur! Og nú fara bæði vítin. 5/8 og nú frákast og á Pierce sem setur þrist. Og loksins tekur Phil pásusleppir Jackson leikhlé. 30-22. Og svo kemur Posey, 33-24. Rosalega fín stoðsending frá Pierce á hr. Hustle, Powe. And1! Auðvitað setur hann það, 36-26. Og svo sækir Garnett villu (eftir langan tvist sem klikkaði áðan). Ísbjarnarbúningurinn frá Svala var stórkostlegur! Og hláturinn frá Benna er eftirtektarverður, kætir mann. Villa á Powe? Furðulegt. Powe út af og ovation í kjölfarið, á það skilið. Og rosaleg keyrsla og sending frá Pierce, og vel útfært layup og fisk frá Perkins! 40-32, fyrir vítið. Hann setur það. Lakers ættu ekki að vera kvarta undan Odom, hann er í stuði. En á hvað var verið að dæma á Perkins?! Jæja, snyrtilegt mismatch, Gasol á Pierce, og hann er 5 af 5 í skotum. Garnett klikkar en nær sínu eigin frákasti. Og já, stór þristur! Pierce! Og stór þristur Allen!! 47-37. Vandræðaleg Lakerssókn sem Fisher bjargar, en svo fær Kobe 3. villuna með harkalegri hrindingu. Pierce fær vítin, 49-40. En hvar væru þessi ömurlegheit án Gasols? PIERCE!!! 51-42. Og Rondo blokkar hann, Garnett tekur frákastaið, stoðsendir á Rondo sem tekur sitt fyrsta skot, troðslu!! Þá annað hraðupphlaup, Pierce klikkar en Rondo vinur okkar nær sóknarfrákasti (shades of Dennis Johnson), og svo sækir hann villu. Klikkar á fyrra, ekki því síðarar, 54-42. Og það er staðan í hálfleik eftir að Derek Fisher sýnir að hann getur ekki skapað sér sitt eigið skot.
3. leikhluti
Gasol byrjar á klikki, löng Boston sókn sem klárast með Allen körfu. Svo klikkar Fish og Perkins sækir villu úr hraðupphlaupi, setur bæði, 58-42. Jæja, Odom setur körfu og Perkins með slaka sendingu á Allen og út af. Garnett klikkar, Perkins sóknarfrákastar og og Pierce klikkar. Kaupajárn með flotta hreyfingu og blótsyrði, tæknivíti. Allen setur það. Slök sending frá Pierce og Allen brýtur á Fisher í hraðupphlaupi. Rondo út á Pierce, þristur!! 62-46. En úff, 4. villan á Perkins, á hvað segi ég?? Rosalega fín Rondokeyrsla, PJ Brown setur jumper. Og svo góð vörn á Gasol keyrslu, en þristur frá Allen snýst upp úr. Garnett keyrsla á Gasol, villa og víti. Garnett setur fyrra og leikhlé, 65-49. Seinna skotið of stutt. Kaupajárnið skorar úr erfiðu skoti. Flott give and go milli Garnetts og Rondo, en lúaleg villa frá Odom í troðslutilraun. Þriðja villan á Ray Allen, Kaup í víti. Og sóknarvilla á Rondo?! Whatwhat?? Fín Lakersútfærsla, vont Pierce skot en gott sóknarfrákast og putback frá Garnett. Og svo aftur Lakerskarfa… kominn tími á leikhlé, 68-59. Pierce klikkar eftir leikhlé, en Allen ver vel á móti. Nú kemur keyrsla frá Pierce og karfa, 70-59. Radmanovic er off í sendingu, og í skoti áðan, en vá flott Rondosending á Pierce, layup, 72-59. Airball hjá Kaupajárni, flott laumusending frá Garnett á PJ Brown. Frústrerað skot frá Kaup, og Lamar Odom dúndrar boltanum í liggjandi PJ Brown. Tæknivillu á manninn! Luke Walton unclutch, Rondo á Allen og hvað haldið þið!!! Misheppnað alleyoop frá Kaup á Gasol en Rondo á Powe gengur vel, og nú er staðan 79-59. - Leikhlé - ruðningur á Odom, 5 villur og Svali er í formi. “Þetta er alveg augljóst, þetta var alveg í fjölmiðlum í gær.” Turnover og Pierce á Powe, TROÐ!! Og Vujacic skorar loksins, 81-61. Og Pierce á Rondo á Powe, og TROÐ!! Leikhluti búinn, 83-61. - Ef að Lakers vinna þennan leik þá bæta þeir 21 stigs forskotssaxmet Boston, gegn New Jersey 2002. Þá skoraði Pierce dáldið mikið líka.
4. Leikhluti.
Jæja, PJ Brown klikkar og Farmar setur þrist. En vá, LEON POWE! Keyrsla í þetta sinn. Hann er sko að vinna sér inn frekari leiktíma. Kaup á Turiaf í iðnaðaralleyoop. Rondo rennur og skýtur í hringinn og PJ Brown frákastar. Næst keyrir Rondo sendir á Powe sem uppsker víti. Og bara Allen og Rondo úr byrjunarliðinu inná. Powe setur fyrra, Powe setur síðara. 87-66. Aftur iðnaðaralleyoop frá Kaup á Turiaf. Rondo á Garnett, ofaní. Þristur frá Förma. Garnett klikkar og hver tekur sóknarfrákast og sækir víti, Powe. Ég held hann sé málið. Rondo á Garnett, við vítalínuna og ofaní. - Leikhlé - Powe keyrir allan völlinn og treður með offorsi! Kaup frústrerað skot og Garnet setur jumper, Kaupið svarar. - Rondo á Powe, Farmar brýtur á honum. Þá verða það vítaskot nr. 12 og 13. Setur bara fyrra, og já, Svali með réttmætan punkt. Rondo er með 16 stoðsendingar!!!! Hann er á öðru ári í deildinni. Kaup setur víti, 1 og 2. 96-75. Jæja, fyrsta klikkið frá Powe, ljótur babyhook sem snertir ekki hringinn. Og svo mistekst Kaupinu í alleyoopi. Pierce skrefar en hittir samt úr bump þristi. Radmanovic setur þrist, 96-78. Misheppnað alleyoop frá Rondo á Powe og svo óskiljanleg villa á Powe sem tók boltann hreinlega af Fisher. Vítin sett og þá keyrir Pierce á móti og sækir víti, setur fyrra en ekki síðara. Rad, Gasol, svo Vujacic, 97-83. Garnett klikkar en Allen fær sóknarfrákast og auðvelt layup. Fisher setur svo þrist, 99-86. Garnett klikkar úr póstinum en Lakers klikka líka, 3:48 eftir og leikhlé hjá Celtics. Og þá Allen á Posey í horninu sem setur þrist. Radmanovic setur layup. Allen aftur á Posey í horninu og nú klikkar hann og Kaup setur fljótan þrist. Þá keyrir Rondo á menn og sækir víti. 102-91. - Leikhlé - Klikkar á fyrra, klikkar á seinna. Kaupakeyrsla gengur, komið í níu stig. Þá er Piercekeyrsla, 11 stig. Kaupakeyrsla, turnover og tvistur og annar turnover og Radmanovic troðsla eftir fimm skref. Radmanovic af öllum mönnum að sýna einhverja vörn. 1.03 eftir, 104-100. Rondokeyrsla, opinn undir en sér það ekki. Keyrir út, fær boltann aftur og klikkar á skoti. Brotið á Kaupi, bæði víti ofan í. Pierce keyrir og sækir villu. 22,8 sec. eftir, 104-102. Fyrra ofan í. Seinna ofan í. Hann er clutch. Vujacic með ljótan airball, hann er ekki clutch. Posey með frákast og brotið á honum svo hann fær víti. 12,6 eftir. Posey setur fyrra. Hann setur síðara. Klúðurslegt Kaupajárn og airball frá Fisher. Leikurinn búinn, 108-102.
Ég var merkilega lítið stressaður. - Takk fyrir mig, í bili.